Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sem staðfestir umhverfisskýrslu First Water hf. sem áður hét Landeldi hf. First Water vinnur að uppbyggingu sjálfbærs laxeldis á landi í Þorlákshöfnum að auka framleiðslu félagsins í 28.000 tonn í 4 fösum. Álit Skipulagsstofnunarer mikilvægt skref að uppbyggingu laxeldis á landi í Þorlákshöfn og mun félagið áfram sem hingað til leggja áherslu á lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrganýtingu auðlinda með sjálfbærni að leiðarljósi.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water:
„Þetta álit er mikið fagnaðarefni fyrir okkur ogstaðfestir mat okkar sérfræðinga á umhverfisáhrifum. Það er því full ástæða til bjartsýni og viðhöldum ótrauð áfram uppbygginguumhverfisvæns og sjálfbærs laxeldis á landi.“
Sjá frétt á vef Skipulagsstofnunar
Nánari upplýsingarveitir Eggert Þór Kristófersson, eggert@firstwater.is.